Ég er búin að vera lengi að hugsa um að
skrifa hingað inn, en svo hætti ég alltaf við. Ég hef verið að pæla soldið í
því hversu persónulegt ég á að hafa bloggið mitt, hversu mikið maður á í raun
að segja frá. Sjálf hef ég gefist upp á að lesa önnur blogg því mér finnst þau
ekkert persónuleg, oft heldur tilgerðarleg og jafnvel bara sýndarmennska, þar
sem fólk virðist geta keypt sér allt og gert allt sem þeim langar, eiga
fullkomna fjölskyldu, íbúð, vinnu og allan pakkann. Sjálfri finnst mér mikið
skemmtilegra að lesa blogg þar sem ég fæ á tilfinninguna að færslurnar séu
skrifaðar af hreinskilni og áhuga höfundar á að deila hugmyndum, innblæstri,
áhugamálum sínum og hvatningu til lesenda sinna, þar sem allt er ekki alltaf endilega dans á rósum.
Ég hef alltaf reynt að hafa mitt blogg
soldið persónulegt, en ekki of mikið samt. Sem gerir það að verkum að þegar
eitthvað persónulegt, eða erfiðleikar, eru í gangi hjá mér, þá hef ég ekki
skrifað neitt inn. Auðvitað er sumt sem maður er alls ekki að fara að deila
hérna inni með öllum, en kannski maður ætti að vera örlítið opnari og
persónulegri, leyfa lesendum að kynnast sér örlítið betur….
Ég hef hingað til aðallega skrifað um
ræktina, mataræði, sjónvarpsþætti og bara svona almennt um hluti sem ég og
dóttir mín erum að bardúsa. En ég er mikið að spá í að fara að skrifa líka
aðeins dýpri pælingar, til dæmis um andlegu hliðina á “bölki” og “kötti”,
hvernig maður getur tæklað metnaðarleysi fyrir ræktinni og hollu mataræði og
fleira í þeim dúr.
Eru einhverjir hér sem hefðu áhuga á að
lesa slíkt?
Er með nokkrar slíkar færslur í vinnslu sem
mig myndi langa að deila ef áhugi væri fyrir :)
xx
Rósa
1 comment:
Jááá :D
Post a Comment