Pages

Thursday, July 16, 2015

Smá allskonar

Það eru ansi mörg járn í eldinum hjá manni þessa dagana!

Þetta quote á svo vel við hjá mér þessa dagana :)
Ég er að vinna að smá tilboði og breytingum í þjálfuninni minni, ásamt heimasíðu, sem mun allt saman koma í ljós um mánaðarmótin ágúst/september. Ég veit ekki alveg hvort ég muni halda áfram að blogga á þessari síðu þegar hin kemur í loftið, eða hvort ég muni færa bloggið alveg yfir á undirsíðu inná heimasíðunni minni. Þó ég muni gera það, þá mun ég samt halda áfram að blogga á sama hátt og ég hef gert. En ætla þá að bæta við pistlum varðandi mataræði og hreyfingu; ráðleggingar, æfingar, uppskriftir og þess háttar. Verð með fullt af nýjungum í boði, er gífurlega spennt fyrir þessu!

Svo er ég að fara út núna eftir 21 dag! Við Elín Mist erum að fara til New York og verðum í 12 daga, eins og ég hef nú alveg örugglega nefnt hérna áður hehe. Þvílík spenna! Verður ljúft að fá loksins frí og sól! Mun vera ofur dugleg á instagram og snapchat að deila myndum og skemmtilegheitum þaðan, verið alveg óhrædd við að adda mér, notendanafnið mitt er rosasoffia á báðum vígvöllum. Ég er líka frekar dugleg flesta daga að pósta æfingum og því sem ég er að borða ef þið hafið áhuga á að fylgjast með slíku.

New York, New York
Svo er Bikarmótið í fitness 21.nóvember og ég verð með! Þegar ég kem heim að utan verða rúmlega 13 vikur í mót svo það verður bara byrjað ALL IN um leið og ég mæti á klakann!! Get ekki beðið. Búin að vera núna síðan í desember að stækka mig og bæta á mig vöðvum því ég var orðin ansi “rýr” og vantaði alveg slatta á vöðvabúskapinn. Hlakka svo til!!

Ég er orðin svo tattoo sjúk þessa dagana, aldrei að vita nema ég láti skella á mig einhverju fínu síðustu dagana úti. Eða að ég bíði með það þangað til ég kem heim. Kemur allt í ljós. Ég veit hvernig tattoo mig langar í og hvar (og þau eru sko alveg fleiri en eitt hehe), en mér finnst svo gaman að fara bara óvænt að fá mér tattoo, er ekki mikið fyrir að panta tíma og bíða í marga daga...

Þessi tattoo eru soldið í þeim dúr sem mig langar í :)

xx
Rósa
 

No comments: